Eftir tvo langa og erfiða daga er nauðsynlegt að slappa aðeins af. Og hvernig er best að gera það? Rauðvín já. Mitt svar við öllu.
Í dag kvaddi ég afa minn sem var mér ákaflega mikilvægur.
Ég er með alveg ofsalega lítið hjarta og svona dagar taka verulega á. En mikið sem ég er þakklát fyrir að hafa haft þennan dásamlega mann í lífi mínu í heil 28 ár. Það eru svo sannarlega ekki allir jafn lánsamir.
Eigið gott fimmtudagskvöld mín kæru.
knús á þig og þína í dag og já rauðvín og súkkulaði á vel við :)
ReplyDeletekv. Halla
þúsund þakkir halla mín**
Delete