May 7, 2013

Algjört sælgæti!


Ókei, síðasta hnetusmjörs-hnossgætið í bili. Lofa. Þetta er bara of gott til þess að deila því ekki með ykkur. Ég þykist vita að það séu fleiri aðdáendur þessa dásemdarsmjörs þarna úti.


Í þetta sælgæti þarf:

1 bolli hnetusmjör
2/3 bolli hunang
1/2 bolli kókosolía
2 bollar haframjöl (ég myndi nota gróft haframjöl)
Rúmlega 1 bolli af dökku súkkulaði


Hnetusmjör, hunang og kókosolía er brætt saman í potti við vægan hita. Þegar allt er orðið að góðri blöndu er potturinn tekinn af hellunni. 


Vel fullur bolli af súkkulaði og haframjöl fer ofan í pottinn. Þetta er allt hrært saman þar til súkkulaðið hefur bráðnað.



Bökunarpappír er settur í eldfast mót og blandan jöfnuð þar ofan í. Þessu er síðan smellt í fyrstir í góðan klukkutíma.


Þetta er hrikalega gott. Hrikalega segi ég!


Ég skar kökuna svo í bita og lét aftur í frystirinn. Misheppnuð tilraun til þess að koma í veg fyrir að ég myndi hakka þetta allt í mig í einu. Ég er nú þegar búin að fara fleiri ferðir í frystirinn en ég kæri mig um að telja.

Mæli með því að þið prófið!

(Uppskriftin kemur héðan).

No comments:

Post a Comment