Það hvarflaði bara ekki að mér benda honum á að kippa með sér gönguskónum sínum. Enda eru þeir með eindæmum ljótir. Já hann keypti þá áður en við kynntumst.
En já, Köben. Algjörlega dásamleg. Þó ég þurfi líklega að fara í endurhæfingu þegar að ég kem heim. Ég er ekki viss um að ég geti staðið á lappir í fyrramálið.
Þetta átti að vera mynd af okkur báðum. En ég hef svo sem alltaf verið fyrirferðarmeiri en hann.
Fyrsta stopp þegar við lentum seint í gærkvöldi. Djúpsteiktar fröllur og beikonborgari fyrir svefninn. Namm.
Ah, þetta kunni ég að meta. Að fá afhent teppi til þess að sitja undir á einum barnum sem við stöldruðum við á í dag.
Þetta var svo guðdómlega gott smörrebröd. Samt borða ég eiginlega ekki rækjur. Og heldur ekki djúpsteiktan fisk. Mmm, ég gæti samt hugsað mér þennan disk í öll mál.
Bollakaka með súkkulaði og sjávarsalti! Ég hefði vel getað dáið hamingjusöm eftir þennan snæðing.
Ég kveð ykkur í bili með örlitlu broti af himnaríki - fylgihlutadeildin í H&M.
Þangað til næst mín kæru.
No comments:
Post a Comment