Þetta dundaði ég mér við í gærkvöldi og uppskar væga naglalakkseitrun í kjölfarið. Úff, lyktin af naglalökkum hlýtur að vera banvæn í of miklu magni. Ég var að minnsta kosti komin með ofskynjanir á tímabili. Eða svona næstum.
Í þetta föndur þarf að sjálfsögðu fáein falleg naglalökk. Ljósan grunnlit og síðan bleikan, rauðan og grænan í blómin. Ég notaði tannstöngla til þess að teikna á nöglina - ég hugsa að það sé talsvert betra að nota mjóan pensil ef maður býr svo vel að eiga einn slíkan.
Þetta eru nú örlítið hrossaleg blóm hjá mér - enda var þetta fyrsta tilraun. Næsta verður fegurri, þá mun ég líka nota pensil.
(Leiðbeiningar skref fyrir skref má finna hérna).
No comments:
Post a Comment