Ég sagði ykkur frá því um daginn hvernig ég stunda að leyfa afkvæminu að skreyta jólatréð og ríf síðan allt af því og skreyti sjálf. Hér að ofan má sjá það sem ég hef þurft að horfa á um helgina. Skakkar jólakúlur, stílbrot í litaþema og svo gekk hann nú næstum af mér dauðri þegar hann hófst handa við að troða sælgæti á tréð. Þá var mér allri lokið.
Þessa jólahátíðina virðist afkvæmið því miður komið til vits og ára. Hann hefur mig augljóslega undir grun um þessi skreytingasvik og vaktar bölvað tréð eins og fálki. Hann hefur vart vikið frá því alla helgina og dáist að handbragði sínu í gríð og erg.
Blessað barnið var þó tilneytt til að víkja af jólatrésvaktinni í dag og fara í skólann. Þá tók móðurómyndin til hendinni.
Núna er hann búinn að vera heima í hálftíma án þess að veita trénu athygli. Ég vona af öllu hjarta að ég og elsku tréð mitt séum komin í örugga höfn frá litlum fingrum. Fingrum sem augljóslega erfðu ekki smekklegheit móður sinnar.
Heyrumst.
Þetta er allt voðalega fallegt, elska hvít gervitré (græn mega hins vegar fara og aldrei koma aftur, græn tré eiga að vera lifandi og ilmandi!) en ég er sjálf með svona tré, er samt meira eins og litli þinn, the messier the better, og mér finnst nammið mega flott viðbótarskraut! :)
ReplyDelete#Krossaputtahannfariaðlagaþettatil
jólakveðjur frá rigningu og 5°c hita í Danaveldi, enginn jólasnjór hér :(
xoxo Heiðdís
Ps. Fyrst þú ert komin í frí, má ég mæla með þáttunum Scandal?
Torgaði öllum 39 þáttum sem til eru hingað til, á fimm dögum. (mætti nú líka í vinnuna)
Hef á tilfinningunni you would like 'em.
Ó, sælgætið er svo sannarlega komið aftur á bölvað tréð. Hann svífst einskis eins og móðir sín - ég rétt brá mér af bæ hérna í gærkvöldi og hjartans tréð mitt var aftur orðið að hryðjuverki. Þetta stríð mun sennilega standa fram í janúar því ég tel nokkuð öruggt að hvorugt okkar láti í minni pokann!
DeleteÉg skal brenna grænu trén á björtu báli með þér!
Scandal - mig vantar einmitt e-h að gera. Fer í málið núna!
Takk fyrir dásamlegt komment að venju!
xx
Viðvörun samt: Scandal mun eiga þig (og svefninn) en gefðessu séns meira en 3 þætti (fyrstu 3 eru ok, en ekkert í samanburði við restina.)
DeleteÉg er Team Tacky krakki alla leið, í stóra jólatrésskreytingarmálinu.
x H