Jan 2, 2014

Nýársglaðningur.

Ég sagði frá því hérna að ég hefði keyrt austur í jólafrí ásamt tveimur karlmönnum. Karlskröttum ef út í það er farið. Ég skildi hvorki upp né niður í neinu sem rætt var á leiðinni - eins og til dæmis enska meistaradeildin og eldamennska, hvorugt umræðuefna er minn tebolli. Þess vegna fór ég að sofa. Það voru stór mistök. Þeir stöðvuðu bílinn til þess að mynda mig sofandi. Virkilega ókræsilega, sofandi í einhverskonar haug þar sem ég varð skyndilega fimm hökum ríkari.

Sennilega verð ég einhleyp að eilífu eftir þessa myndbirtingu. En ég kæri mig ekki um að eiga yfir höfði mér ítrekaðar hótanir um að þessi mynd verði birt. Nei strákar, ég tek málin í mínar eigin hendur. Myndin er hér með opinber.


Verði ykkur að góðu.

Núna ætla ég að fara og taka speglamyndir til þess að vega upp á móti þessum ósköpum.

Heyrumst.

3 comments:

  1. Hahahahaha! Mer finnst þu mjög hugrökk! !

    ReplyDelete
  2. Litlir Bleikir FílarJanuary 3, 2014 at 1:37 PM

    Glæsileg! Skemmtileg ómeðvituð pósa sem þú tókst í svefni, þú situr fyrir eins og fagmanneskja - bæði vakandi og sofandi. Það kalla ég afrek

    ReplyDelete