Mar 7, 2014

Hafragrauturinn minn.


Ég hef nú minnst á hafragrautinn minn góða hérna oftar en einu sinni. Sennilega oftar en tvisvar. Ég er óttalegur hafragrautspervert. Gæti borðað hann í öll mál. Stundum get ég varla sofnað á kvöldin af því ég hlakka svo til að borða hafragrautinn minn morguninn eftir. 

Allt í lagi. Stundum stend ég hreinlega upp úr rúminu og geri mér hafragraut. Að kvöldi til. Af því ég get ekki beðið. 

Ég geri yfirleitt sama grautinn. Ég setti uppskriftina hérna inn fyrir löngu. Svona þegar amma og mamma voru mínir einu lesendur. Ég ætla þess vegna að smella henni inn aftur og skora á ykkur að prófa. Sérstaklega ykkur sem hendið höfrum og vatni í pott og kallið það hafragraut. Oj bara. 


Guðrúnargrautur (já, ég tók mér það bessaleyfi að skíra hann.).

Byrja á því að ná sér í skál. Sem má fara í örbylgjuofn.

Í hana fer:

1 dl haframjöl
Lítil lúka af hörfræjum
1 dl vatn
1dl mjólk
1/2 banani
1 teskeið kókosolía
Kúfuð skeið af hnetusmjöri


Haframjölið og hörfræin fara fyrst í skálina.

Já sloppurinn minn og naglalakkið er í stíl. Eins og hjá alvöru gardínufyllibyttu.


Þar á eftir setjið þið vatnið og mjólkina. Bananinn er svo skorinn út í.

Þetta fer síðan inn í örbylgjuofn í eina mínútu og þrjátíu sekúndur. Já, akkúrat það. Þá er skálin tekin úr og þið stappið bananann saman við blönduna. Inn í örbylgjuofninn með þetta aftur í svona góðar þrjátíu sekúndur.


Hrærið vel í grautnum þegar hann kemur út úr örbylgjuofninum í seinna skiptið. Hann ætti að vera nokkuð þykkur. Að því búnu náið þið í kókosolíu, smellið teskeið út í og hrærið meðan hún bráðnar saman við. 

Þarna er lyktin orðin undursamleg. Mmm. 


Síðast en ekki síst, punkturinn yfir i-ið og rúsínan í pylsuendanum. Hnetusmjör!


Við viljum verulega væna skeið af því. 

Stingið skeiðinni með hnetusmjörinu ofan í grautinn. Þar hitnar hnetusmjörið og mýkist. Hafragrauturinn er svo borðaður með hnetusmjörsskeiðinni. Ef þið skiljið hvað ég á við. Þið notið skeiðina með hnetusmjörinu í til þess að borða grautinn. Þá fáið þið dálítið hnetusmjör með hverri skeið sem fer upp í munninn. 


Uppáhalds maturinn minn.

Að eilífu.

Amen.

Eigið góða helgi.

Heyrumst.

4 comments:

  1. mmmm... ég prófaði að gera Guðrúnar-graut í morgun. Hann var svo góður að ég held ég verði að búa hann til aftur þegar ég kem heim úr vinnu í dag :) Kv. Hafdís

    ReplyDelete
  2. Þetta er mesta snilldin! er að borða svona núna og vá, ég held það verði ekki aftur snúið! Takk fyrir að deila þessu :)

    ReplyDelete
  3. Oh. Mér hlýnar bara að innan við að heyra þetta!

    ReplyDelete
  4. Ég er þessi henda-höfrum-og-vatni-í-pott-týpa en prufaði þennan og bara takk! Aldrei aftur hafrar og vatn :) Kv. Lilja

    ReplyDelete