Ég keypti mér leggings. Af því ég er leggingsóð og á aldrei nóg af þeim.
Mig er búið að langa í þessar buxur í meira en ár en hef aldrei keypt þær. Ég veit hreinlega ekki af hverju.
Hugsanlega gerði það útslagið að þær voru á 50% afslætti núna - ásamt fullt af annarri íslenskri hönnun. Mæli með að þið kíkið hingað.
Það er nú alls ekki hægt að fagna án þess að smá glingur fylgi líka með.
Ég er yfir mig ástfangin af þessu hálsmeni. Kostaði tæpar tvöþúsnd krónur og fæst í fleiri litum.
Ég gat auðvitað ekki pantað bara eitt hálsmen. Ég varð að fá eitthvað pínulítið meira. Armbönd - ógurlega fín. Ég ætlaði að taka mynd af þeim á hendinni á mér en ég var svo skjálfhent að ég koma þeim ekki á. Ég ætti kannski að íhuga að hætta að svolgra í mig að minnsta kosti sex kaffibollum fyrir klukkan tíu að morgni.
Glingrið mitt kemur allt héðan.
Ömurlegt að það sé þriðjudagur. Ég get ekkert skálað fyrir mér á þriðjudegi. Ég drekk ekki rauðvín í miðri viku.
Ég vil vera dama. Ekki dagdrykkjumanneskja.
No comments:
Post a Comment